Vefhönnun hefur breyst mikið frá því að fyrstu vefsíðurnar sáu dagsins ljós. HTML forritunarmálið olli byltingu þegar það var fundið upp árið 1990 og skömmu síðar birtist fyrsta vefsíðan á veraldarvefnum eins og hann var kallaður í þá daga. Nokkrum árum eftir að fyrsta vefsíðan fór í loftið, árið 1996, var fundið upp kóðakefi sem var samofið HTML og átti eftir að bylta vefsíðugerð enn meir en þetta var svokallað CSS eða Cascading Style Sheet forritunarmálið. Bæði þessi forritunarmál eru notuð enn í dag þó svo að mikil þróun hafi átt sér stað. Í dag eru meira en 3 milljarðar notenda á netinu og fer vaxandi.
Þegar kemur að því að velja vefumsjónakerfi fyrir fyrirtækjasíður, heimasíður félagasamtaka eða persónulegar vefsíður og bloggsíður fyrir einstaklinga er úr mörgu að velja. Flestir þeir sem leita eftir tilboðum við vefsíðugerð vilja hafa hana á „viðráðanlegu“ verði eða gegn eins vægu gjaldi og mögulegt er.
Með því að nota Joomla vefumsjónakerfið þarf ekki að greiða neina „leigu“ eða notkunargjöld þar sem það er ókeypis og eign allra í raun. Úrval af leiðbeiningum um notkun kerfisins gerir þeim sem óvanir eru vefsmíði auðvelt fyrir. Kerfið er í stöðugri þróun og mánaðarlega er kerfið uppfært með nýjungum og öryggiskóðum.
Fjöldi stórra og smárra fyrirtækja, félagasamtaka og opinberra stofnana nota Joomla vefumsjónakerfið. Nýjasta uppfærslan Joomla 3+ hefur þá eiginleika að hægt er að skrifa og endurbæta greinar frá framenda vefsíðunnar, þurfa ekki að nota stjórnunarviðmót kerfisins.
Einn af megin kostum við vefsíðugerð með joomla er sá að til eru þúsundir vefþema, vefhönnunar (e.Templates)og tengiforrita (e.plugins) sem hægt er að kaupa gegn mjög vægu gjaldi og í mörgum tilfellum fæst það ókeypis. Allt þetta gerir vefsíðugerð og vefsmíði með joomla hagkvæmasta kostinn sem völ er á.
Markvís er í samstarfi við nokkur öflug vefhönnunarfyrirtæki sem smíða vefþemur og tengiforrit sem henta öllum stærðum vefsíðna. Allar vefsíður sem við smíðum eru skalanlegar; það er að segja þær eru snjallsíður. Snjallsíður aðlaga sig sjálfkrafa að öllum skjástærðum og eru því auðnotaðar á símtækjum, spjaldtölvum jafnt sem far-og borðtölvum.
Vefþemur frá Joomlart eru ávalt uppfærð miðað við nýjustu tækni og hafa flotta og sveigjanlega hönnun. Ef þú ert að leita eftir snjallsíðu það er vefhönnun sem aðlagar sig að mismunandi stærð af skjám, hefur flotta virkni á valmynd (e.menu) ásamt fleiri skemmtilegum græjum þá hefur Joomlart sniðið fyrir þig. Markvís er meðlimur í vefhönnunarklúbbi Joomlart og hefur því aðgang að tæknilegri aðstoð við sérstök verkefni.
10% afsláttur ef greiddir eru 12 mánuðir í einu. Verð eru með VSK
kr6.000/mán
kr18.000/mán
kr12.000/mán
*PDF skýrslur innihalda prentvæna útgáfu af flestum skýrslunum sem finna má í netskýrslunni. PDF skýrslur eru sendar með tölvupósti í byrjun hvers mánaðar.
**Aðstoð við túlkun niðurstaða. PDF skjöl sem send eru með tölvupósti eru með stuttum skýringum. Ef þörf er á frekari túlkun niðurstaða eða aðstoð við skýrslurnar þá bjóðum við aðstoð í gegnum síma. Þó að hámarki eina klukkustund í mánuði. Senda má fyrirspurnir með tölvupósti.
Harvard notaði eina af fyrstu útgáfum Joomla.
Þetta er flott vefsíða sem hefur verið uppfærð fyrir snjalltæki
Virtur netmiðill sem notar öflugt fjölmiðlakerfi frá Joomlaworks
Linux er öflugt frjálst stýrikerfi sem notað er víða um heim.
Vefsíða Guggenheim er stór og öflug og notar uppfærða útgáfu af Joomla 2.5
Hér er gríðarlega efnismikill vefur sem Sameinuðu þjóðirnar reka fyrir upplýsingamiðstöð í Evrópu.